1. ERTU SKÝRÐ/UR Í HÖFUÐIÐ Á EINHVERJUM? Já ég er skírð í höfuðið á henni ömmu minni, ömmu Ragnhildi. Átti reyndar að heita Margrét en pabbi hætti við nokkrum dögum fyrir skírn. Hann fékk sem sagt að ráða nafninu mínu þar sem mamma hafði fengið að ráða á elsta bróður mínum.
2. HVENÆR FÓRSTU SÍÐAST AÐ GRÁTA? Fór í bíó á Sex and the City myndina með mæju á föstudaginn og hágrét meðal annars þegar ein frökenin eignaðist barn.
3. FINNST ÞÉR ÞÚ SKRIFA VEL? Stundum, samt oftast ekki.
4. HVAÐA KJÖT ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR? Kjúklingur og lamabakjöt
5. ÁTTU BÖRN ? EF JÁ HVAÐ MÖRG? Eitt stykki, Kára minn
6. EF ÞÚ VÆRIR EINHVER ANNAR EN ÞÚ ERT, VÆRIR ÞÚ VINUR ÞINN? Varla, þar sem mig langar svo að vera einhver Víkingur árið 890
7. NOTAR ÞÚ KALDHÆÐNI MIKIÐ? Veit það ekki alveg....þarf aðeins að melta þetta svar
8. FÆRIR ÞÚ Í TEYGJUSTÖKK? hæpið
9. HVAÐA MORGUNMATUR ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR? Kornfleks
10. REIMAR ÞÚ FRÁ ÞEGAR ÞÚ FERÐ ÚR SKÓNUM? já ég er nebbla svo oft í uppreimuðum skóm sem er ekki hægt að komast úr nema að reima frá
11. TELUR ÞÚ ÞIG ANDLEGA STERKA/N? já já, samt ekki þegar ég hef komið að ægilegu bílsslysi eins og var nú orðið daglegur viðburður þarna sumarið 2005
12. HVERNIG ÍS ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR? Finnskur lakkrís ís, ég slefa við tilhugsunina
13. HVAÐ ER ÞAÐ FYRSTA SEM ÞÚ TEKUR EFTIR Í FARI FÓLKS? Augnsvipnum. Augun eru glugginn að sál fólks.
14. Rauður eða bleikur varalitur? Rauður
15. HVAÐ MISLÍKAR ÞÉR VIÐ SJÁLFAN ÞIG? Æi svo margt.
16. HVAÐA MANNESKJU SAKNAR ÞÚ MEST? Æi ég sakna afa Boga, sakna oft Þóru, sakna Kára þegar hann sefur langa dúra, sakna mjög oft Steina bróðurs. Já og svo sakna ég mömmu þegar ég er ein heima og er ekki að höndla að elda hafragraut/grjónagraut eða aðra mjög erfiða rétti.
17. VILTU AÐ ALLIR SEM LESA ÞETTA SVARI ÞESSUM LISTA? Já mikið væri það nú gaman - fyrir þá.
18. HVAÐA LIT AF BUXUM OG SKÓM ERU Í NÚNA? Er í svörtum leggings sem ég keypti mér á laugardaginn, svo er ég ekki í buxum heldur eldgömlu svörtu undirpilsi af ofangreindri ömmu Ragnhildi sem er svona assssskoti fínt- er ekki í skóm heldur sokkum, því ég er inni uppí Lazy.
19. HVAÐ VAR ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ BORÐAÐIR? Hrökkbraut með mysing, hljómar svaka Healthy
20. Á HVAÐ ERTU AÐ HLUSTA NÚNA? Mömmu og pabba að tala saman frammi um blessaðan ísbjörninn. Ísbjörn númer 2.
21. EF ÞÚ VÆRIR LITUR HVAÐA LITUR VÆRIR ÞÚ? Grænn, ég er rosa græn manneskja.
22. HVAÐA LYKT FINNST ÞÉR BEST? Lyktin úr hálsakoti ástmannsins eftir góða sturtu, lyktin af Kára mínumm, kolagrilllykt og lyktin af góðum handáburði.
23. VIÐ HVERN TALAÐIR ÞÚ SÍÐAST VIÐ Í SÍMA? Mömmu, hún hringdi heim úr vinnunni til að athuga hvort ég hefði lifað skjálftan af sem kom í morgun.
24. LÍKAR ÞÉR VEL VIÐ ÞÁ MANNESKJU SEM SENDI ÞÉR ÞESSAR SPURNINGAR? Það sendi mér engin þetta, ég las þetta á bloggi
25. UPPÁHALDS ÍÞRÓTT SEM ÞÚ HORFIR Á? Æi ég gæti gubbað yfir þessum íþróttum. Finnst samt skást að horfa á fimleika - og þá held ég ekki með neinum. Held í mesta lagi þvagi því ég er svo stressuð um að fimleikafólkinu mistakist.
26. HVERNIG ER ÞINN HÁRALITUR? Orðin mjög dökkur og ljótur
27. HVERNIG ER ÞINN AUGNLITUR? Blá- grá- grænn
28. NOTAR ÞÚ LINSUR? Nó
29. UPPÁHALDS MATUR? Lambakjöt og kjúlli.
30. HRYLLINGSMYND EÐA GÓÐUR ENDIR? æi bara hvorugt
31. SÍÐASTA BÍÓMYND SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ? 6 and the City
32. KNÚS OG KOSSAR EÐA LENGRA Á FYRSTA DEITI? Það getur nú verð ansi breitilegt eftir greddumagni hverju sinni.
33. UPPÁHALDS EFTIRRÉTTUR? Ís
34. HVER ER LÍKLEGASTUR TIL ÞESS AÐ SVARA ÞESSUM LISTA? æi veit ekki
35. HVER ER ÓLÍKLEGASTUR TIL ÞESS AÐ SVARA ÞESSU? Daníel
36. HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA? Ekki nokkurn skapaðan hlut.
37. HVAÐA MYND ER Á MÚSAMOTTUNNI ÞINNI? Ég er með fartölvu svo hér er engin músamotta.
38. Á HVAÐ HORFÐIR ÞÚ Í SJÓNVARPINU Í GÆR? Ég var bara að dúllast með múttu úti í garði í gærkvöldi svo ég horfði ekki neitt á sjónvarp.
39. ROLLING STONE EÐA BITLARNIR? Bítlarnir
41. HVERJIR ERU ÞÍNIR HELSTU EIGINLEIKAR? Skipulögð, ákveðin, heiðarleg.....
42. HVAR FÆDDIST ÞÚ? Á skurðarborði í Rvk.